Wednesday, October 9, 2013

klessu kaka :)

jæja er ekki komin tími á einhvað óhollt ? :) 

þessi er ein af mínum tilraunadýrum hún er  fjótleg og ógeðslega góð, eitt af mínum uppahalds.


 stillið ofnin á 175°c bakstur

100 gr brætt smjör
2,5 dl sykur ( 250ml)
2 egg 
2 msk kakó
1 tsk vanillusykur

Smjör,egg & sykri hrært vel saman, 
þurrefni sigtuð og bætt í skálina , hrærið vandlega,varlega og vel.

smyrjið bökunarformið eða spreyjið með PAM spreyji.

bakað í 15-20 mín , látið kólna stráið flórsykri yfir , mjög góð líka beint úr ofninum með ís ! 

verði ykkur að góðu
Helena Reykdal



Thursday, October 3, 2013

Graskers franskar ! jömm (butternut sqash)

Ég byrjaði á því að prófa þetta  á sætarkartöflur en ákvað síðan að prófa grasker þar sem að það er hollara, þetta er sko gott. 

Innihald :

Grasker - magn að eigin vali.  
olívuolía 
salt,pipar
paprikukrydd
hvítlauksduft
kanill ( Mjög gott! þarf ekki mikið af honum)

hitið ofnin á 230-40°c bakstur.

 takið bökunarplötuna út setjið álpappír á hana og penlið olíu yfir álpappírinn.
skerið magnið sem að þið ætlið að nota af graskerinu. Flysjið. skerið þann bút í helming og helmingin síðan í franska strimpla. Reynið að skera alla stirmlana jafn þykka. . 

látið graskerið/ butternut squashið í skál ásamt olíu og kryddum.og blandið VEL með höndum. 
raðið á plötuna. það þarf að passa að þær séu vel dreifðar svo að þær soðni ekki heldur verði crispy. 

þetta á að vera í ofninum í 30-45 mín. þegar þær eru búnar að mýkjast er stillt ofnin á blástur/grill.
Þegar tímin hefur  hálfnað þá taki þið töng, snúið frönskunum við og skellið aftur í ofnin. 


góð sósa með þessu:

Grískt jógúrt 
sweet chilli       50/50 
dass blaðlaukur  
örlítið hvítlauksmauk

hrært saman.

Thursday, September 26, 2013

sniðugar blómkálshugmyndir ;)

Blómkálpítsubotn: fyrir 1-2  
innihald                                
1 miðlungs blómkálhaus                                   
1 egg                                                                 
 2 dl ostur.                                                          
 2 - 4 msk möndlumjöl                                           
 1 tsk hvílaukssalt                                                                    
 1 tsk oregano.                                                  
salt og pipar(ekki mikið)  
smá grænmetistengingur

.stillið ofnin á 200 gráður.
skolið blómkálið  og hakkið blómkálið í lítil "hrísgrjón" í matvinnsluvel eða smátt og smátt í blandara  sjóðið með örlittlu vatni og grænmetistening , þegar að blómkálið er orðið mjúkt og vökvin búin að kólna þá setji þið það í viskustykki og kreistið allan vökvan úr og ætti blómkálið að vera lítil "hrísgrjóna" kúla, bætið eggi,osti,möndlumjöli og kryddum, hrærið með sleif eða skeið. serjið á bökunar pappír og skellið í ofnin. í 15 mín
deigjið er svoldið blautt í sér en það jafnast út í ofninum. takið botnin úr ofninum, bætið sósu,áleggi að eigin vali og osti og skellið aftur í ofnin, tilbúið þegar osturinn hefur bráðnað.

Pítsusósa:
3 ferkir tómatar

Hakkaðir tómatar 200gr frá Sollu

1 tsk hvítlauksmauk

Salt og pipar

3 tsk taco krydd

1 tsk hvítlaukssalt

¼ tsk sukrin eða sykur. hakka tómatana og hrærir restinni saman voila.

Rjómalöguð Blómkálssúpa.

Innihald:

1 blómkálshaus                                                       
1 rauðlaukur 
1 tsk hvítlauksmauk
1 kjúklinga eða grænmetisteningur                            
3 dl vatn
3 dl rjómi
1 dl 18% sýrður rjómi
1 dl hreinn rjómaostur
salt,hvítur og svartur pipar 
1 msk chillimauk .
smjör.
 (gott með beikoni eða kjúklingi í )

mýkjið laukin með smörinu(ekki brúna) , setjið allt saman í pott nema rjóma ostinn, þegar að blómkálið er mjúkt og suða komin upp þá er bætt við rjómaostinum og tekið af hellunni.það er líka hægt að mauka súpuna og hafa hana svoldið eins og  puré.
(ef að þú ætlar að hafa kjúkling þá þarf að steikja hann áður en hann er bættur við súpuna og ef að þú ætlar að hafa beikon þarftu að steikja það þar til það er stökkt og strá því yfir í skálina þína ;) )


Blómkálmús.

1 Blómkálshöfuð
125 gr smjör 
1/2 tsk hvítlauksmauk eða 3 hvítlauksbitar saxaðir                 
50-100 ml kókómjólk eða rjóma
salt,pipar
1-3msk hreinn rjómaostur
1 dl rifinn ostur að eigin vali.
- púrrlaukur sem skraut- þarf ekki .

sjóðið blómkálið þar til að það er vel mjúkt og sigtið ,setjið aftur í pottin. stappið blómkálinu ásamt smjörinu með kartöflu stappara eða handblandara. bætið kókósmjólk(eða rjóma),salt,pipar,osti,rjómaosti og hvítlaukmauki(hvítlauki) hrærið vel.


karrý Blómkáls Hrísgrjón :) 

1 blómkálshöfuð 
1 rauð paprika og 1 græn paprika.
1/4 jalapenó (val,þarf ekki)                              
 1/2 rauðlaukur
smjör klípa
salt pipar
karrý 
hvítlauksmauk
örlítið af chilli mauki
50dl kókósmjólk.

setjið blómkálshausinn í blandara og hálf fyllið hann af vatni, hakkið blómkálið í hrísgrjón. Sigtið hrísgrjónin í fíngerðu sigti(allur vökvi á að fara ;) ). setjið á pönnu ásamt grænmeti,smjörklípu,vökva og kryddum. steikjið vel. tilbúið þegar að blómkálið er mjúkt.
 (auðvitað er hægt að hafa hvaða grænmeti sem er eða ekkert grænmeti og hvaða krydd sem er )








Saturday, September 21, 2013

mexico súpa frá grunni.

mmm hverjum finnst ekki mexíkó kjúklinga súpa góð ?
fyrir 2-4.

Innihald:
smjörklípa eða 1 msk ólívu/kókósolía
1/2 blaðlaukur
1 paprika 
1 tsk hvítlauksmauk
1 stk sæt kartafla.
(1 stk chilli ef að þú vilt hafa hana sterka)

2-3 kjúklingabringur
skorðið eftir smekk.

5 msk salsa sósa
3 msk tomato paste
1 dós hakkaðir tómatar eða hálf flaska af maukuðum tómötum(solla)
1 líter vatn
2x kjúklingakrafts teningar
salt,pipar,chilli powder,taco krydd (eftir smekk).
100 gr rjóma ostur.


í pottin sem að þú ætlar að nota steikjiru kjúklingin þegar að þú hefur gert það bætiru smjörklípu,blaðlauki,papriku,hvítlauksmauki & sætu kartöflunni við og létt steikir
 (mýkja laukinn ekki brúna hann) síðan er bætt öllu nema rjómaosti við.
nóg er að láta hana malla þar til að sæta kartaflan er tilbúin en mér finns gott að láta hana koma í suðu og hafa hana á lágum hita í 2-3 klst. þegar að þú ert tilbúiin að taka hana af hellunni bætiru við rjóma ost og hrærir örlítið.

(síðan er alltaf hægt að stækka uppskriftina,bæta við eða hafa öðruvísi grænmeti,kjöt og jafnvel baunir)

hugmyndir/gott meðlæti :
Doritoz(natchos), eða Way better snack.
sýrður rjómi,
rifinn ostur
(brauðsnittur)





Thursday, September 12, 2013

Smartís smákökur

mmm þessar eru sko góðar ! 

stillið ofnin á 180 gráður,bakstur.
                                       
Smartís smákökur
innihald: 
150 gr mjúkt smjör (stofuhitað)                  
1 1/2 dl hvítur púðursykur (það er í lagi að nota brúnan líka ;) )
1 tsk vanilludropar
1 dl sykur 
3 1/4 dl hveiti
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt 
2 dl smartís eða súkkulaðiperlur frá nóa sírius
1 egg . 

blandað varlega og vel saman með sleif eða skeið. gert flatar littlar kúlur (eða stórar ef að þú villt) á bökunarpappír bakið í 10-20 mín , fylgjist vel með þeim .

Verði ykkur að góðu Helena Reykdal.

Monday, September 9, 2013

Hnetukubbar

Þessir slóu algerlega í gegn hjá mér og ef að þú elskar hnetur/hnetusmjör er þetta sko einhvað fyrir þig!
Eysteinn er mikil hnetukall og fékk ég innblástur frá honum að gera  úber gott hnetusúkkulaði .


Hnetukubbar

               innihald: 
                1/2 bolli kókósolía
                1 bollu hnetusmjör                                
                1/2 bolli hunang
              1 1/2 bolli nóa rjómasúkkulaði
               1/3 bolli hafrar
                kókósmjöl eftir smekk 
              1 teskeið vanilludropar
                 hnetur að eigin vali(ég nota kasju).

Aðferð:
 setjið kókósolíu,hnetusmjör og hunang í pott, setjið á milliháan hita og bræðið vel saman,
bætið súkkulaði við, þegar það hefur blandast vel  bætið höfrum,kókósmjöli og hnetum við blönduna.
bættu vanilludropum rétt áður en að þú tekur þetta af helluni. passið að blandan sjóði ekki mikið eða brenni.

seinast er látið þetta í form(þykktin fer eftir þínum smekk).
sett í kæli í 1-2 klst eða hálftíma í frysti. 
síðan bara skorið í bita :) .

- Helena Reykdal



               

Wednesday, August 28, 2013

Pítubrauð .

Pítubrauð 


innihald : 

2 1/4 teskeið þurrger (einn pakki)
1 teskeið hunang
1 1/2 bolli volgt/heitt vatn
3 bollar hvítt hveiti (getur líka notað spelt eða heilhveit)
1 1/4 teskeið salt

settu þurrgerið ásamt 1/2 bolla af vatni og hunanginu í matarskál , hrærið í blöndunni með skeið þangað til að þetta er vel blandað saman og láttu hana sitja í 10-15 mínutur eða þangað til að blandan er froðukennd.

í stóra skál blandaðu hveiti og salti. gerðu littla holu í miðjuna á hveitinu og settu gerblönduna í hana. hægt og rólega hrærðu hveiti við gerblönduna. rólega blandaðu restina af vatninu og hrærðu með sleif eða sleikju þangað til að deigjið er teygjanlegt. settu hveiti á borð og hnoðaðu deigjið í 10-15 mínutur eða þar til að það er ekki klístrað lengur og fer til baka eftir að þú ert búin að pota í það. 

láttu deigjið í stóra skál sem er búið að láta olíu eða non stick sprey á og leyfðu því að sitja á hlýjum stað í u.þ.b klst eða þar til að það er orðin helmingi stærra. 

þegar að það er tilbúið lemjið það niður og rúllið í lengju gerðu 10-12 bita og láttu þá sitja í 10 mínutúr í viðbót.  

stillið ofnin á 250-260°C. 

gerðu kúlur úr bitunum og fletjið út í stærðina sem að þú vilt (þykktin á að vera við þykkt á pítubrauði) 

látið í neðstu hilluna í ofninum í 3-6 mínútur .

þessi pítubrauð endast í 1 viku í kæli eða allt að 1 mánuð í frysti. 

mér finnst líka gott að nota þessa uppskrift í brauðbollur þá geri ég það sama en hef þær þykkari. 

- Helena Reykdal








Monday, August 19, 2013

Holl,einföld og matar mikil súpa

fyrir 1-2

innihald: 3 littlar gulrætur eða ein stór.
               1/2 sæt kartafla 
              100 gr spínat  
               1/2 græn paprika
               1/2 rauð paprika                                                         
               1 hvítlauksrif 
             1/3-1/2 lítill rauðlaukur
              vatn

               1/2 kjúklingabringa (eða 1stk euroshopper)
               
              30 gr kasjuhnetur 
             
              1/2 kjúklingakrafta kubbur.
                 salt og pipar.

skerið og flysjið gulrætur og sætar kartöflur í bita (því minni því styttri suðu tíma þurfa þær)
setjið í pott og vatn sem nær yfir þær (um 300-500ml).
steikjið kjúklingin með smá salt og pipar.
þegar að þú getur stungið gaffli auðveldlega í gegnum kartöflurnar bættu þá restinni af grænmetinu í pottin(mæli með að skera spínatið vel) bætið krafti,salt og pipari við og sjóðið í 5-7mín í viðbót. bætið kasjuhnetunum á pönnuna og létt steikjið með kjúklinginum. bætið kjúklinginum og hnetum í pottinn.

volla .verði ykkur að góðu.

-Helena Reykdal.




   



             

Thursday, August 15, 2013

Asískur Núðluréttur

þetta er ein af mínum nýju uppskriftum . 
 uppskriftin er fyrir 2.

 Núðluréttur.

 300 gr grænmeti (ferskt) 
getið valið hvað sem ykkur dettur í hug
ég nota rauða og græna papríku,sveppi,lauk,kál/spínat og smá ferskan chilli.

sósa 
300ml AB mjólk (ég nota létta)
1 msk dion sinnep
1msk tómatsósa
1msk franskt sinnep
1/4 tsk matarsóti
1 tsk brúnn matarlitur
1 msk blue dragon hvítlauksmauk
salt og pipar eftir smekk

200 gr kjúklingur(ég nota bringur) eða 3stk egg (getið jafnvel notað bæði)

ef að þið ætlið að hafa kjúkling er gott að marenera hann í sósunni í nokkra tíma en er ekki nauðsynlegt. 

125 gr núðlur.mér finnst best að nota hveiti núðlur en eggjanúðlur virka vel líka .
 (mæli ekki með að nota pakka núðlur)

Aðferð : 

steikjið kjúklingin með helmingin af sósuni þar til hann er tilbúin 
(ef að þið ætlið að hafa egg þá er það bara að steikja eggin fyrst án sósu og þegar að þau eru tilbúin bæta þá við sósu)
bætið grænmetinu við og steikjið í u.þ.b 5 mínútur hræra vel . 
bætið núðlunum við í endan bætið við um u.þ.b 150ml af vatni og restinni af sósunni 
hrærið stöðugt.
steikjið í 5-10 mínutur í viðbót.

Njótið. 

Helena Reykdal