Ég gerði bakaða kartöflu um daginn í fyrsta skipti og hún heppnaðist ótrúlega vel,Hef aldrei fengið jafngóða kartöflu áður og það besta er að kartöflu skinnið er algjört nammi (Ég borða sjálf vanalega ekki hýðið).stillið ofnin á 180gráður
Skolaðu kartöfluna vel með volgu vatni og þurrkið vel með viskastykki.
stingið göt allstaðar í kartöfluna með gaffli .
berið ólívuolíu vel á hana.
stráið vel af grófu salti utan á hana.
pakkið henni í álpappír.
hafið hana í ofninum í 1:45 mín seinustu 20 mín takið álfpappírin af og hækkið ofnin upp í 220gráður.
látið Kartöfluna hvílast í smá stund áður en hún er borin fram.
Hún á að vera krispí að utan og mjúk að innan = fullkomin.