Wednesday, September 17, 2014

Pestó

Mig langaði  í pestó en átti ekki það sem var í uppskriftini sem ég ætlaði að fylgja og búið að loka búðini svo ég skoðaði bara hvað ég átti og útkoman varð bara svona ljómandi góð !

Pestó : 
1 lítil krukka af sólþurrkuðum tómörum í olíu 
                
45 ml ólía úr krukkuni

1 hvítlauksrif

20-30 gr af hörðum ost ég notaði Red devil vaxost frá slowdonia cheese company (fæst í Hagkaup) En það er hægt að nota t.d parmasan eða cheddar , Þessi ostur er smá sterkur sem gerir smá kick í pestóið.

lúka af möndlum 

tsk lime safi

salt/pipar (jafnvel cayneanne pipar)

Blandað saman í matvinnsluvél/blandara :) 




Tuesday, September 9, 2014

Heimagert Snickers!

Þessa uppskrift fann ég á netinu en hef breytt henni smá t.d eru bræddar tilbúnar karmellur í hinni uppskriftini en ég geri karamelluna sjálf frá grunni ;) 
mynd úr einkasafni.

-takið form að eiginvali því minni því þykkari verður snickersið og öfugt :) -
best er að setja bökunarpappír/álpappír í formið svo auðvelt sé að taka snickersið úr og skera!

Heimagert SNICKERS . 
150 gr Rjómasúkkulaði 
150 gr Suðursúkkulaði 

bræðið saman yfir vatnsbaði & hellið helminginum í formið og setjið það inní frysti. gott er að geyma restina af súkkulaðinu yfir vatnsbaði.

100 gr smjör
200gr sykurpúðar
2-3msk fínt hnetusmjör 
100gr salt hnetur (ef að þú ert mikið fyrir hnetur er hægt að hafa 150gr)

bræðið allt nema hnetur saman í potti á miðslungshita og hrærið reglulega. Þegar þetta hefur blandast vel saman bætið þið hnetunum við , takið formið úr frysti ,hellið yfir súkkulaðið og skellið aftur í frystirinn.

karmella:
120gr smjör
90gr púðursykur
30gr hvítur sykur
150gr rjómi (ég nota 15% laktósfrían matarrjóma )
1/4 tsk salt

bræðið smjörið á lágum hita, bætið restini við og stillið hitan á hæðsta hita. hrærið örlítið en alls ekki mikið því þá gæti myndast kristalar. hafið á hæðsta hita í u.þ.b 4-5 mínútur, takið af helluni og leyfið karmelluni að standa í smástund eða þar til að hún er volg , takið formið úr frysti og hellið karmelluni yfir. Hendið forminu í frysti í 5 -10 mínútur 

takið formið aftur úr frysti & hellið restini af súkkulaðinu yfir og hendið inní frysti í 10-15 mín. 

-Geymist í ískáp -




Hollt,ferskt guacamole(láperumauk)

Marg oft reynt að fylgja uppskrifum á netinu og ekki en náð að finna uppskrift sem ég fíla svo ég ákvað að gera uppskrift eftir mínu höfði og ég elskaði útkomuna!
mynd tekin af google!

1 stór eða tvær litlar lápera(avacado)
1/2 dolla sýrður rjómi
1 tómatur eða 4 kokteiltómatar
1 paprika
1/2 rauðlaukur
 1-2 msk af chillimauki frá blue dragon (fer eftir hversu sterkt þú vilt hafa þetta)
1 tsk hvítlauksmauk frá blue dragon (eða 2 hvítlauksrif)
1-2msk ferskur lime safi
 salt og pipar
Aðferð

Stappið láperuna vel og hrærið sýrða rjómanum,maukunum og lime safanum við.
Skerið grænmetið mjög smátt og hrærið varlega við
*gott að geyma inní ískáp í 1-2 tíma eða lengur áður en það er borðað*

gott ráð - til að finna út hvort að avakadó-ið er þroskað er hægt að ýta laust við mjóa endan og ef að hann er mjúkur er láperan þroskuð ! :)

Thursday, July 31, 2014

Kókóstvistur.

Finnst þér  brownie með ís ótrúlega gott ? 

Hérna er einhvað alveg jafngott en mun fjótlegara! 

Kókóstvistur

Mynd tekin frá google.
uppskrift : 50gr smjör
                50gr kókósolía
                2 1/2dl hafrar
                 1 dl kókós
                1/8 tsk salt
                1 msk hunang
                2-3 msk kakó
                2 msk sykur (má jafnvel sleppa) 
                 2 msk rjómi/mjólk
                    
                                     
 Aðferð : á miðlungshita leyfið smjöri og kókósolíu að bráðna, bætið höfrum við og hrærið vel þegar að hafrarnir hafa tekið smjörið/kókósolíuna í sig að mestu leiti bætið þið rjóma/mjólk saman við ásamt rest og hrærið vel!
 (ef að þú vilt hafa þetta aðeins hollara er ekkert verra að sleppa smjörinu og hafa 70gr kókósolíu í staðinn ! )

síðan er það bara að fá sér vanillu ís og kókóstvistur beint úr pottinum :)  
                



Monday, February 10, 2014

Fullkomin bökuð kartafla !

Jæja núna er sko orðið ansi langt síðan að ég bloggaði! 

Ég gerði bakaða kartöflu um daginn í fyrsta skipti og hún heppnaðist ótrúlega vel,Hef aldrei fengið jafngóða kartöflu áður og það besta er að kartöflu skinnið er algjört nammi (Ég borða sjálf vanalega ekki hýðið).

stillið ofnin á 180gráður

Skolaðu kartöfluna vel með volgu vatni og þurrkið vel með viskastykki.   
stingið göt allstaðar í kartöfluna með gaffli .
berið ólívuolíu vel á hana. 
stráið vel af grófu salti utan á hana.
pakkið henni í álpappír.

hafið hana í ofninum í 1:45 mín seinustu 20 mín takið álfpappírin af og hækkið ofnin upp í 220gráður.
látið Kartöfluna hvílast í smá stund áður en hún er borin fram.

Hún á að vera krispí að utan og mjúk að innan = fullkomin.