Tuesday, September 9, 2014

Heimagert Snickers!

Þessa uppskrift fann ég á netinu en hef breytt henni smá t.d eru bræddar tilbúnar karmellur í hinni uppskriftini en ég geri karamelluna sjálf frá grunni ;) 
mynd úr einkasafni.

-takið form að eiginvali því minni því þykkari verður snickersið og öfugt :) -
best er að setja bökunarpappír/álpappír í formið svo auðvelt sé að taka snickersið úr og skera!

Heimagert SNICKERS . 
150 gr Rjómasúkkulaði 
150 gr Suðursúkkulaði 

bræðið saman yfir vatnsbaði & hellið helminginum í formið og setjið það inní frysti. gott er að geyma restina af súkkulaðinu yfir vatnsbaði.

100 gr smjör
200gr sykurpúðar
2-3msk fínt hnetusmjör 
100gr salt hnetur (ef að þú ert mikið fyrir hnetur er hægt að hafa 150gr)

bræðið allt nema hnetur saman í potti á miðslungshita og hrærið reglulega. Þegar þetta hefur blandast vel saman bætið þið hnetunum við , takið formið úr frysti ,hellið yfir súkkulaðið og skellið aftur í frystirinn.

karmella:
120gr smjör
90gr púðursykur
30gr hvítur sykur
150gr rjómi (ég nota 15% laktósfrían matarrjóma )
1/4 tsk salt

bræðið smjörið á lágum hita, bætið restini við og stillið hitan á hæðsta hita. hrærið örlítið en alls ekki mikið því þá gæti myndast kristalar. hafið á hæðsta hita í u.þ.b 4-5 mínútur, takið af helluni og leyfið karmelluni að standa í smástund eða þar til að hún er volg , takið formið úr frysti og hellið karmelluni yfir. Hendið forminu í frysti í 5 -10 mínútur 

takið formið aftur úr frysti & hellið restini af súkkulaðinu yfir og hendið inní frysti í 10-15 mín. 

-Geymist í ískáp -




No comments:

Post a Comment