Wednesday, August 28, 2013

Pítubrauð .

Pítubrauð 


innihald : 

2 1/4 teskeið þurrger (einn pakki)
1 teskeið hunang
1 1/2 bolli volgt/heitt vatn
3 bollar hvítt hveiti (getur líka notað spelt eða heilhveit)
1 1/4 teskeið salt

settu þurrgerið ásamt 1/2 bolla af vatni og hunanginu í matarskál , hrærið í blöndunni með skeið þangað til að þetta er vel blandað saman og láttu hana sitja í 10-15 mínutur eða þangað til að blandan er froðukennd.

í stóra skál blandaðu hveiti og salti. gerðu littla holu í miðjuna á hveitinu og settu gerblönduna í hana. hægt og rólega hrærðu hveiti við gerblönduna. rólega blandaðu restina af vatninu og hrærðu með sleif eða sleikju þangað til að deigjið er teygjanlegt. settu hveiti á borð og hnoðaðu deigjið í 10-15 mínutur eða þar til að það er ekki klístrað lengur og fer til baka eftir að þú ert búin að pota í það. 

láttu deigjið í stóra skál sem er búið að láta olíu eða non stick sprey á og leyfðu því að sitja á hlýjum stað í u.þ.b klst eða þar til að það er orðin helmingi stærra. 

þegar að það er tilbúið lemjið það niður og rúllið í lengju gerðu 10-12 bita og láttu þá sitja í 10 mínutúr í viðbót.  

stillið ofnin á 250-260°C. 

gerðu kúlur úr bitunum og fletjið út í stærðina sem að þú vilt (þykktin á að vera við þykkt á pítubrauði) 

látið í neðstu hilluna í ofninum í 3-6 mínútur .

þessi pítubrauð endast í 1 viku í kæli eða allt að 1 mánuð í frysti. 

mér finnst líka gott að nota þessa uppskrift í brauðbollur þá geri ég það sama en hef þær þykkari. 

- Helena Reykdal








Monday, August 19, 2013

Holl,einföld og matar mikil súpa

fyrir 1-2

innihald: 3 littlar gulrætur eða ein stór.
               1/2 sæt kartafla 
              100 gr spínat  
               1/2 græn paprika
               1/2 rauð paprika                                                         
               1 hvítlauksrif 
             1/3-1/2 lítill rauðlaukur
              vatn

               1/2 kjúklingabringa (eða 1stk euroshopper)
               
              30 gr kasjuhnetur 
             
              1/2 kjúklingakrafta kubbur.
                 salt og pipar.

skerið og flysjið gulrætur og sætar kartöflur í bita (því minni því styttri suðu tíma þurfa þær)
setjið í pott og vatn sem nær yfir þær (um 300-500ml).
steikjið kjúklingin með smá salt og pipar.
þegar að þú getur stungið gaffli auðveldlega í gegnum kartöflurnar bættu þá restinni af grænmetinu í pottin(mæli með að skera spínatið vel) bætið krafti,salt og pipari við og sjóðið í 5-7mín í viðbót. bætið kasjuhnetunum á pönnuna og létt steikjið með kjúklinginum. bætið kjúklinginum og hnetum í pottinn.

volla .verði ykkur að góðu.

-Helena Reykdal.




   



             

Thursday, August 15, 2013

Asískur Núðluréttur

þetta er ein af mínum nýju uppskriftum . 
 uppskriftin er fyrir 2.

 Núðluréttur.

 300 gr grænmeti (ferskt) 
getið valið hvað sem ykkur dettur í hug
ég nota rauða og græna papríku,sveppi,lauk,kál/spínat og smá ferskan chilli.

sósa 
300ml AB mjólk (ég nota létta)
1 msk dion sinnep
1msk tómatsósa
1msk franskt sinnep
1/4 tsk matarsóti
1 tsk brúnn matarlitur
1 msk blue dragon hvítlauksmauk
salt og pipar eftir smekk

200 gr kjúklingur(ég nota bringur) eða 3stk egg (getið jafnvel notað bæði)

ef að þið ætlið að hafa kjúkling er gott að marenera hann í sósunni í nokkra tíma en er ekki nauðsynlegt. 

125 gr núðlur.mér finnst best að nota hveiti núðlur en eggjanúðlur virka vel líka .
 (mæli ekki með að nota pakka núðlur)

Aðferð : 

steikjið kjúklingin með helmingin af sósuni þar til hann er tilbúin 
(ef að þið ætlið að hafa egg þá er það bara að steikja eggin fyrst án sósu og þegar að þau eru tilbúin bæta þá við sósu)
bætið grænmetinu við og steikjið í u.þ.b 5 mínútur hræra vel . 
bætið núðlunum við í endan bætið við um u.þ.b 150ml af vatni og restinni af sósunni 
hrærið stöðugt.
steikjið í 5-10 mínutur í viðbót.

Njótið. 

Helena Reykdal