Wednesday, October 9, 2013

klessu kaka :)

jæja er ekki komin tími á einhvað óhollt ? :) 

þessi er ein af mínum tilraunadýrum hún er  fjótleg og ógeðslega góð, eitt af mínum uppahalds.


 stillið ofnin á 175°c bakstur

100 gr brætt smjör
2,5 dl sykur ( 250ml)
2 egg 
2 msk kakó
1 tsk vanillusykur

Smjör,egg & sykri hrært vel saman, 
þurrefni sigtuð og bætt í skálina , hrærið vandlega,varlega og vel.

smyrjið bökunarformið eða spreyjið með PAM spreyji.

bakað í 15-20 mín , látið kólna stráið flórsykri yfir , mjög góð líka beint úr ofninum með ís ! 

verði ykkur að góðu
Helena Reykdal



Thursday, October 3, 2013

Graskers franskar ! jömm (butternut sqash)

Ég byrjaði á því að prófa þetta  á sætarkartöflur en ákvað síðan að prófa grasker þar sem að það er hollara, þetta er sko gott. 

Innihald :

Grasker - magn að eigin vali.  
olívuolía 
salt,pipar
paprikukrydd
hvítlauksduft
kanill ( Mjög gott! þarf ekki mikið af honum)

hitið ofnin á 230-40°c bakstur.

 takið bökunarplötuna út setjið álpappír á hana og penlið olíu yfir álpappírinn.
skerið magnið sem að þið ætlið að nota af graskerinu. Flysjið. skerið þann bút í helming og helmingin síðan í franska strimpla. Reynið að skera alla stirmlana jafn þykka. . 

látið graskerið/ butternut squashið í skál ásamt olíu og kryddum.og blandið VEL með höndum. 
raðið á plötuna. það þarf að passa að þær séu vel dreifðar svo að þær soðni ekki heldur verði crispy. 

þetta á að vera í ofninum í 30-45 mín. þegar þær eru búnar að mýkjast er stillt ofnin á blástur/grill.
Þegar tímin hefur  hálfnað þá taki þið töng, snúið frönskunum við og skellið aftur í ofnin. 


góð sósa með þessu:

Grískt jógúrt 
sweet chilli       50/50 
dass blaðlaukur  
örlítið hvítlauksmauk

hrært saman.