Wednesday, September 17, 2014

Pestó

Mig langaði  í pestó en átti ekki það sem var í uppskriftini sem ég ætlaði að fylgja og búið að loka búðini svo ég skoðaði bara hvað ég átti og útkoman varð bara svona ljómandi góð !

Pestó : 
1 lítil krukka af sólþurrkuðum tómörum í olíu 
                
45 ml ólía úr krukkuni

1 hvítlauksrif

20-30 gr af hörðum ost ég notaði Red devil vaxost frá slowdonia cheese company (fæst í Hagkaup) En það er hægt að nota t.d parmasan eða cheddar , Þessi ostur er smá sterkur sem gerir smá kick í pestóið.

lúka af möndlum 

tsk lime safi

salt/pipar (jafnvel cayneanne pipar)

Blandað saman í matvinnsluvél/blandara :) 




Tuesday, September 9, 2014

Heimagert Snickers!

Þessa uppskrift fann ég á netinu en hef breytt henni smá t.d eru bræddar tilbúnar karmellur í hinni uppskriftini en ég geri karamelluna sjálf frá grunni ;) 
mynd úr einkasafni.

-takið form að eiginvali því minni því þykkari verður snickersið og öfugt :) -
best er að setja bökunarpappír/álpappír í formið svo auðvelt sé að taka snickersið úr og skera!

Heimagert SNICKERS . 
150 gr Rjómasúkkulaði 
150 gr Suðursúkkulaði 

bræðið saman yfir vatnsbaði & hellið helminginum í formið og setjið það inní frysti. gott er að geyma restina af súkkulaðinu yfir vatnsbaði.

100 gr smjör
200gr sykurpúðar
2-3msk fínt hnetusmjör 
100gr salt hnetur (ef að þú ert mikið fyrir hnetur er hægt að hafa 150gr)

bræðið allt nema hnetur saman í potti á miðslungshita og hrærið reglulega. Þegar þetta hefur blandast vel saman bætið þið hnetunum við , takið formið úr frysti ,hellið yfir súkkulaðið og skellið aftur í frystirinn.

karmella:
120gr smjör
90gr púðursykur
30gr hvítur sykur
150gr rjómi (ég nota 15% laktósfrían matarrjóma )
1/4 tsk salt

bræðið smjörið á lágum hita, bætið restini við og stillið hitan á hæðsta hita. hrærið örlítið en alls ekki mikið því þá gæti myndast kristalar. hafið á hæðsta hita í u.þ.b 4-5 mínútur, takið af helluni og leyfið karmelluni að standa í smástund eða þar til að hún er volg , takið formið úr frysti og hellið karmelluni yfir. Hendið forminu í frysti í 5 -10 mínútur 

takið formið aftur úr frysti & hellið restini af súkkulaðinu yfir og hendið inní frysti í 10-15 mín. 

-Geymist í ískáp -




Hollt,ferskt guacamole(láperumauk)

Marg oft reynt að fylgja uppskrifum á netinu og ekki en náð að finna uppskrift sem ég fíla svo ég ákvað að gera uppskrift eftir mínu höfði og ég elskaði útkomuna!
mynd tekin af google!

1 stór eða tvær litlar lápera(avacado)
1/2 dolla sýrður rjómi
1 tómatur eða 4 kokteiltómatar
1 paprika
1/2 rauðlaukur
 1-2 msk af chillimauki frá blue dragon (fer eftir hversu sterkt þú vilt hafa þetta)
1 tsk hvítlauksmauk frá blue dragon (eða 2 hvítlauksrif)
1-2msk ferskur lime safi
 salt og pipar
Aðferð

Stappið láperuna vel og hrærið sýrða rjómanum,maukunum og lime safanum við.
Skerið grænmetið mjög smátt og hrærið varlega við
*gott að geyma inní ískáp í 1-2 tíma eða lengur áður en það er borðað*

gott ráð - til að finna út hvort að avakadó-ið er þroskað er hægt að ýta laust við mjóa endan og ef að hann er mjúkur er láperan þroskuð ! :)