innihald 1 miðlungs blómkálhaus
1
egg
2 dl
ostur.
2 - 4 msk
möndlumjöl
1 tsk
hvílaukssalt
1 tsk
oregano.
salt og pipar(ekki mikið)
smá
grænmetistengingur.stillið ofnin á 200 gráður.
skolið blómkálið og hakkið blómkálið í lítil "hrísgrjón" í matvinnsluvel eða smátt og smátt í blandara sjóðið með örlittlu vatni og grænmetistening , þegar að blómkálið er orðið mjúkt og vökvin búin að kólna þá setji þið það í viskustykki og kreistið allan vökvan úr og ætti blómkálið að vera lítil "hrísgrjóna" kúla, bætið eggi,osti,möndlumjöli og kryddum, hrærið með sleif eða skeið. serjið á bökunar pappír og skellið í ofnin. í 15 mín
deigjið er svoldið blautt í sér en það jafnast út í ofninum. takið botnin úr ofninum, bætið sósu,áleggi að eigin vali og osti og skellið aftur í ofnin, tilbúið þegar osturinn hefur bráðnað.
Pítsusósa:
3 ferkir
tómatar
Hakkaðir tómatar
200gr frá Sollu
1 tsk
hvítlauksmauk
Salt og
pipar
3 tsk taco
krydd
1 tsk
hvítlaukssalt
¼ tsk sukrin
eða sykur. hakka tómatana og hrærir restinni saman voila.
Rjómalöguð Blómkálssúpa.
Innihald:
1 blómkálshaus
1 rauðlaukur 1 tsk hvítlauksmauk
1 kjúklinga eða grænmetisteningur
3 dl vatn
3 dl rjómi
1 dl 18% sýrður rjómi
1 dl hreinn rjómaostur
salt,hvítur og svartur pipar
1 msk chillimauk .
smjör.
(gott með beikoni eða kjúklingi í )
mýkjið laukin með smörinu(ekki brúna) , setjið allt saman í pott nema rjóma ostinn, þegar að blómkálið er mjúkt og suða komin upp þá er bætt við rjómaostinum og tekið af hellunni.það er líka hægt að mauka súpuna og hafa hana svoldið eins og puré.
(ef að þú ætlar að hafa kjúkling þá þarf að steikja hann áður en hann er bættur við súpuna og ef að þú ætlar að hafa beikon þarftu að steikja það þar til það er stökkt og strá því yfir í skálina þína ;) )
Blómkálmús.

1 Blómkálshöfuð
125 gr smjör
1/2 tsk hvítlauksmauk eða 3 hvítlauksbitar saxaðir
50-100 ml kókómjólk eða rjóma
salt,pipar
1-3msk hreinn rjómaostur
1 dl rifinn ostur að eigin vali.
- púrrlaukur sem skraut- þarf ekki .
sjóðið blómkálið þar til að það er vel mjúkt og sigtið ,setjið aftur í pottin. stappið blómkálinu ásamt smjörinu með kartöflu stappara eða handblandara. bætið kókósmjólk(eða rjóma),salt,pipar,osti,rjómaosti og hvítlaukmauki(hvítlauki) hrærið vel.
karrý Blómkáls Hrísgrjón :)

1 blómkálshöfuð
1 rauð paprika og 1 græn paprika.
1/4 jalapenó (val,þarf ekki)
1/2 rauðlaukur
smjör klípa
salt piparkarrý
hvítlauksmauk
örlítið af chilli mauki
50dl kókósmjólk.
setjið blómkálshausinn í blandara og hálf fyllið hann af vatni, hakkið blómkálið í hrísgrjón. Sigtið hrísgrjónin í fíngerðu sigti(allur vökvi á að fara ;) ). setjið á pönnu ásamt grænmeti,smjörklípu,vökva og kryddum. steikjið vel. tilbúið þegar að blómkálið er mjúkt.
(auðvitað er hægt að hafa hvaða grænmeti sem er eða ekkert grænmeti og hvaða krydd sem er )



