Eysteinn er mikil hnetukall og fékk ég innblástur frá honum að gera úber gott hnetusúkkulaði .
Hnetukubbar

innihald:
1/2 bolli kókósolía
1 bollu hnetusmjör
1/2 bolli hunang
1 1/2 bolli nóa rjómasúkkulaði
1/3 bolli hafrar
kókósmjöl eftir smekk
1 teskeið vanilludropar
hnetur að eigin vali(ég nota kasju).
Aðferð:
setjið kókósolíu,hnetusmjör og hunang í pott, setjið á milliháan hita og bræðið vel saman,
bætið súkkulaði við, þegar það hefur blandast vel bætið höfrum,kókósmjöli og hnetum við blönduna.
bættu vanilludropum rétt áður en að þú tekur þetta af helluni. passið að blandan sjóði ekki mikið eða brenni.
seinast er látið þetta í form(þykktin fer eftir þínum smekk).
sett í kæli í 1-2 klst eða hálftíma í frysti.
síðan bara skorið í bita :) .
- Helena Reykdal
No comments:
Post a Comment