Wednesday, August 28, 2013

Pítubrauð .

Pítubrauð 


innihald : 

2 1/4 teskeið þurrger (einn pakki)
1 teskeið hunang
1 1/2 bolli volgt/heitt vatn
3 bollar hvítt hveiti (getur líka notað spelt eða heilhveit)
1 1/4 teskeið salt

settu þurrgerið ásamt 1/2 bolla af vatni og hunanginu í matarskál , hrærið í blöndunni með skeið þangað til að þetta er vel blandað saman og láttu hana sitja í 10-15 mínutur eða þangað til að blandan er froðukennd.

í stóra skál blandaðu hveiti og salti. gerðu littla holu í miðjuna á hveitinu og settu gerblönduna í hana. hægt og rólega hrærðu hveiti við gerblönduna. rólega blandaðu restina af vatninu og hrærðu með sleif eða sleikju þangað til að deigjið er teygjanlegt. settu hveiti á borð og hnoðaðu deigjið í 10-15 mínutur eða þar til að það er ekki klístrað lengur og fer til baka eftir að þú ert búin að pota í það. 

láttu deigjið í stóra skál sem er búið að láta olíu eða non stick sprey á og leyfðu því að sitja á hlýjum stað í u.þ.b klst eða þar til að það er orðin helmingi stærra. 

þegar að það er tilbúið lemjið það niður og rúllið í lengju gerðu 10-12 bita og láttu þá sitja í 10 mínutúr í viðbót.  

stillið ofnin á 250-260°C. 

gerðu kúlur úr bitunum og fletjið út í stærðina sem að þú vilt (þykktin á að vera við þykkt á pítubrauði) 

látið í neðstu hilluna í ofninum í 3-6 mínútur .

þessi pítubrauð endast í 1 viku í kæli eða allt að 1 mánuð í frysti. 

mér finnst líka gott að nota þessa uppskrift í brauðbollur þá geri ég það sama en hef þær þykkari. 

- Helena Reykdal








No comments:

Post a Comment