þetta er ein af mínum nýju uppskriftum .
uppskriftin er fyrir 2.
Núðluréttur.
300 gr grænmeti (ferskt)
getið valið hvað sem ykkur dettur í hug
ég nota rauða og græna papríku,sveppi,lauk,kál/spínat og smá ferskan chilli.
sósa
300ml AB mjólk (ég nota létta)
1 msk dion sinnep
1msk tómatsósa
1msk franskt sinnep
1/4 tsk matarsóti
1 tsk brúnn matarlitur
1 msk blue dragon hvítlauksmauk
salt og pipar eftir smekk
200 gr kjúklingur(ég nota bringur) eða 3stk egg (getið jafnvel notað bæði)
ef að þið ætlið að hafa kjúkling er gott að marenera hann í sósunni í nokkra tíma en er ekki nauðsynlegt.
125 gr núðlur.mér finnst best að nota hveiti núðlur en eggjanúðlur virka vel líka .
(mæli ekki með að nota pakka núðlur)
Aðferð :
steikjið kjúklingin með helmingin af sósuni þar til hann er tilbúin
(ef að þið ætlið að hafa egg þá er það bara að steikja eggin fyrst án sósu og þegar að þau eru tilbúin bæta þá við sósu)
bætið grænmetinu við og steikjið í u.þ.b 5 mínútur hræra vel .
bætið núðlunum við í endan bætið við um u.þ.b 150ml af vatni og restinni af sósunni
hrærið stöðugt.
steikjið í 5-10 mínutur í viðbót.
Njótið.
Helena Reykdal
No comments:
Post a Comment