mmm hverjum finnst ekki mexíkó kjúklinga súpa góð ?fyrir 2-4.
Innihald:
smjörklípa eða 1 msk ólívu/kókósolía
1/2 blaðlaukur
1 paprika
1 tsk hvítlauksmauk
1 stk sæt kartafla.
(1 stk chilli ef að þú vilt hafa hana sterka)

2-3 kjúklingabringur
skorðið eftir smekk.
5 msk salsa sósa
3 msk tomato paste
1 dós hakkaðir tómatar eða hálf flaska af maukuðum tómötum(solla)
1 líter vatn
2x kjúklingakrafts teningar
salt,pipar,chilli powder,taco krydd (eftir smekk).
100 gr rjóma ostur.
í pottin sem að þú ætlar að nota steikjiru kjúklingin þegar að þú hefur gert það bætiru smjörklípu,blaðlauki,papriku,hvítlauksmauki & sætu kartöflunni við og létt steikir
(mýkja laukinn ekki brúna hann) síðan er bætt öllu nema rjómaosti við.
nóg er að láta hana malla þar til að sæta kartaflan er tilbúin en mér finns gott að láta hana koma í suðu og hafa hana á lágum hita í 2-3 klst. þegar að þú ert tilbúiin að taka hana af hellunni bætiru við rjóma ost og hrærir örlítið.
(síðan er alltaf hægt að stækka uppskriftina,bæta við eða hafa öðruvísi grænmeti,kjöt og jafnvel baunir)
hugmyndir/gott meðlæti :
Doritoz(natchos), eða Way better snack.
sýrður rjómi,
rifinn ostur
(brauðsnittur)
No comments:
Post a Comment