Tuesday, September 9, 2014

Hollt,ferskt guacamole(láperumauk)

Marg oft reynt að fylgja uppskrifum á netinu og ekki en náð að finna uppskrift sem ég fíla svo ég ákvað að gera uppskrift eftir mínu höfði og ég elskaði útkomuna!
mynd tekin af google!

1 stór eða tvær litlar lápera(avacado)
1/2 dolla sýrður rjómi
1 tómatur eða 4 kokteiltómatar
1 paprika
1/2 rauðlaukur
 1-2 msk af chillimauki frá blue dragon (fer eftir hversu sterkt þú vilt hafa þetta)
1 tsk hvítlauksmauk frá blue dragon (eða 2 hvítlauksrif)
1-2msk ferskur lime safi
 salt og pipar
Aðferð

Stappið láperuna vel og hrærið sýrða rjómanum,maukunum og lime safanum við.
Skerið grænmetið mjög smátt og hrærið varlega við
*gott að geyma inní ískáp í 1-2 tíma eða lengur áður en það er borðað*

gott ráð - til að finna út hvort að avakadó-ið er þroskað er hægt að ýta laust við mjóa endan og ef að hann er mjúkur er láperan þroskuð ! :)

No comments:

Post a Comment