Monday, February 10, 2014

Fullkomin bökuð kartafla !

Jæja núna er sko orðið ansi langt síðan að ég bloggaði! 

Ég gerði bakaða kartöflu um daginn í fyrsta skipti og hún heppnaðist ótrúlega vel,Hef aldrei fengið jafngóða kartöflu áður og það besta er að kartöflu skinnið er algjört nammi (Ég borða sjálf vanalega ekki hýðið).

stillið ofnin á 180gráður

Skolaðu kartöfluna vel með volgu vatni og þurrkið vel með viskastykki.   
stingið göt allstaðar í kartöfluna með gaffli .
berið ólívuolíu vel á hana. 
stráið vel af grófu salti utan á hana.
pakkið henni í álpappír.

hafið hana í ofninum í 1:45 mín seinustu 20 mín takið álfpappírin af og hækkið ofnin upp í 220gráður.
látið Kartöfluna hvílast í smá stund áður en hún er borin fram.

Hún á að vera krispí að utan og mjúk að innan = fullkomin.



No comments:

Post a Comment